Hvað viltu láta gera? Tengja hjólastíginn frá Hörpunni alveg niður að Granda. Og hafa stíginn þannig að hjólin hafi augljósan forgang á hjólin, við erum útí í kuldanum ekki innií bílnum. Það er ein akgreinin á Geirsgötu yrði breytt í hjólreiðastíg. Hvers vegna viltu láta gera það? Hvetja fólk til að hjóla meir. Það væri öruggara fyrir hjólreiðamenn.
Ég held að þetta sé nú þegar í skipulagi, en um að gera að flýta fyrir þessu. Myndi tengja íbúa í miðborg betur við verslun út á Granda.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Einnig er um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Einkabílinn þarf ekki að víkja fyrir einhverjum aumingjum á hjólum.
Hjól í borgum er framtíðin, með rafmagnshjólin og hlaupahjólin þeir sem hugsa annað eru bara gamlar tuskur.
þetta mun margfalda aðgengi og öryggi hjólandi fólks - þetta er frábær hugmynd!
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation