Hvað viltu láta gera? Þrengja akreinar í báðar áttir á Suðurgötu, sunnan Hringbrautar og setja aðskilda hjólastíga í báðar áttir. Eins og staðan er í dag þá eru "hjólastígarnir" einungis málning á götunni og því ekki öruggir. Hvers vegna viltu láta gera það? Öryggi hjólandi vegfarenda hlýtur að vera í fyrirrúmi, sé ekki tilganginn í að hafa tvöfalda Suðurgötu á þessum tiltölulega stutta kafla.
Vinsamlega hafið þetta eins og er, alls ekki þrengja Suðurgötu fyrir bílaumferð. Breyting kostar mikla peninga sem betur er varið í aðrar framkvæmdir. Hjólamerkingarnar eru fínar á Suðurgötu sjálfri, svokallaðar "sharrows" fyrir þá sem hjóla hratt og þeir sem fara hægar yfir geta notað gangstéttina meðfram götunni.
Ótrúlegt að það sé ennþá fjögurra akgreina hraðbraut í gegnum Háskólasvæðið og alveg upp við fjóra eða fimm leikskóla. Suðurgata er tímaskekkja sem hvetur til hraðaaksturs í miðju íbúahverfi.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Það er löngu kominn tími á að fækka akgreinum. Bílaumferð er ekki mikil en þeim mun hraðari. Suðurgatan eins og er tekur gífurlega mikið pláss og er jafn breið og Vigdísarhús sem stendur við hliðina á því. Þannig sker hún sundur háskólasvæðið og gerir umhverfið almennt kuldalegra.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation