Hvað viltu láta gera? Í hverfinu búa margir eldri borgarar og einnig börn. Klambratúnið er mikið notað en það þarf að þrífa leiksvæðið oft og mála leiktækin. Einnig lóðina í kringum Háteigsskóla og íþróttahúsið, illgresið er ekki fjarlægt fyrr en haustið er um það bil að koma. Vantar bekki fyrir gangandi fólk og hirða um blómaker og gróðurlund og leiksvæði við Bólstaðarhlíð. Umhirða borgarinnar er vægast sagt döpur. Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að hverfið á að vera aðlandi fyrir íbúa þess.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Hluti hugmyndar sem fól í sér fjölgun bekkja er sameinað við aðra hugmynd sem fer áfram sem "Fleiri bekkir og ruslatunnur". Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation