Hvað viltu láta gera? Ég vil fá betri íþróttaaðstöðu í hverfið. Nýtt íþróttahús í Laugardalinn sem nýtist Þrótti og skólunum í kring. Húsið þarf að vera með 3 handboltavelli í fullri stærð, ekki bara einn. Ég vil fá yfirbyggðan knattspyrnuvöll. Getur verið þar sem Valbjarnarvöllur var. Ég vil fá betri leiksvæði við skólana í hverfinu. Þegar maður skoðar t.d. aðstöðuna í Grafarvogi er ljóst að 104 og 105 Laugardalur hafa setið eftir, við erum 40 árum á eftir tímanum. Hvers vegna viltu láta gera það?
Allir bekkir, sem ég hef séð, eru yfirleitt of lágir eða 40 cm sethæð frá jörð og margir fótafúnir eiga erfitt með að standa upp af þeim. Fullorðnir vilja líka róla og vega salt, en það er ekki boðið upp á það. Hafa mjúkt undirlag t.d. hellur úr endurunnum gúmmíhjólbörðum eða gras.
2-3 rólur m/bakstuðningi fyrir fullorðna, sethæð 50-60 cm frá jörð og bekki, með sethæð 60 cm frá jörð.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún rúmast ekki innan fjárhagsramma verkefnisins. Aðrar hugmyndir sem snúa að endurbætum á skólalóðum hverfisins komust áfram í uppstillingu og /eða beint á kjörseðil hverfisins. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation