Breyta notkun á undirgöngum

Breyta notkun á undirgöngum

Hvað viltu láta gera? Undirgöng sem í dag eru skipt fyrir hesta og gangandi/hjólandi ætti að nýta eingöngu fyrir gangandi/hjólandi. Mjög þröngt að fara þessi göng og aðkoma vestan megin með krappri beygju þegar þilið er til að aðskilja umferð. 50m frá þessum undirgöngum eru önnur sem eru bara fyrir hestaumferð og ætti það að nægja. Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta aðgengi gangani og hjólandi milli hverfanna, þetta er leið þeirra sem fara hjólandi úr Norðlingaholti og niður í Elliðaárdal.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021. Heildarendurskoðun á stígatengingum við Breiðholtsbraut er í ferli og hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu í þá vinnu. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information