Hvað viltu láta gera? Útbúa garð/gerði þar sem hundar fá að njóta sín með eigendum sínum í æfingum Hvers vegna viltu láta gera það? Hundar þarfnast hreyfingar en ekki síður þarfnast þeir hugarleikfimi. Í mörg ár hefur verið kallað eftir að á hundasvæðum um Reykavíkurborg verði komið fyrir leiktækjum fyrir hunda en lítið gerst í þeim málum. Utan lausagöngusvæða eru hundagerði fremur lítilfjörleg. Gaman væri að sjá æfingagarð fyrir hunda og eigendur þeirra með ýmsum möguleikum á æfingatækjum svo sem rörum, vegasalt án handfanga, stöllum, römpum og öðru slíku. Möguleg staðsetning væri til að mynda í nálægð við útivistarsvæðið í Gufunesi, þó margar aðrar komi líka til greina.
Prufa...
Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation