Ærslabelgi í Smáíbúðahverfið

Ærslabelgi í Smáíbúðahverfið

Hvað viltu láta gera? Setja ærslabelgi í Smáíbúðahverfið fyrir börn á öllum aldri til að ærslast á. Hvers vegna viltu láta gera það? Hvetja til aukinnar útiveru barna á öllum aldri. Hvetja til aukinnar hreyfingar. Þeir eru víða í nágrannasveitafélögunum. En ég finn bara tvo litla i Reykjavík auk þess sem er í Húsdýragarðinum. Fá einn stóran og góðan í hverfið þannig að börnin okkar geti labbað með góðu móti stutta leið að honum. Ég hvet að þessir ærslabelgir verði settir mjög víða um borgina okkur til gagns og ánægju og til að hvetja krakkana til að vera úti.

Points

Þetta er æðisleg hugmynd og myndi hvetja börn til útveru, hreyfingar og jafnframt efla félagsþroska þar sem þarna er kominn góður samverustaður fyrir krakka í hverfinu að hittast úti og leika

Eykur lífsgæðin, hef séð þetta mikið notað t.d í Kóparvogi

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var sameinuð við 1 af efstu 5 hugmyndunum í hverfinu og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin hefur verið aðlöguð og sameinuð við aðrar hugmyndir um ærslabelgi þar sem að ýmsu þarf að huga þegar verið er að velja staðsetningu ærslabelgja. Horfa þarf til fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði, hávaðamengunar og aðgengis. Þarf að vera á opnu svæði í borgarlandi og nóg rými og pláss fyrir belginn. Svæðið þarf að vera tiltölulega slétt, ekki í halla, og jarðvegur má ekki vera grýttur. Hinum hugmyndum hverfisins verður stillt upp á íbúaráðs Háaleitis og Bústaða á fimmtudaginn næstkomandi þann 6. maí milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 25 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á Facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/202843634962715. Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla hverfa Reykjavíkur fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt sem fram munu fara næsta haust fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. Þín hugmynd var sameinuð annarri hugmynd sem verður á kjörseðlinum í hverfinu í kosningum næsta haust. Hugmyndin þín lifir áfram í sameinuðu hugmyndinni en á síðu Betri Reykjavíkur fær hugmyndin stöðuna “Hafnað”. Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. Til þess að auka líkurnar á því að hugmyndin verði kosin til framkvæmda sumarið 2022 getur þú kynnt hana fyrir nágrönnum þínum og hvatt þau til þess að taka þátt í kosningunni í haust. Við sendum þér póst og minnum þig á þegar að því kemur. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information