Hvað viltu láta gera? Pósthús í miðbær Hvers vegna viltu láta gera það? Þarf ég virkilega að útskýra af hverju þetta er mikilvægt? Nefndu aðra höfðaborg án póstþjónusta í miðbær - það er alveg fráleit hugmynd að við sem vinna og búum í miðbænum þurfum að keyra í vesturbæinn til að sækja og senda pakkan- eins svo stendur við höfum ekki einu sinni pakkaskáp í miðbænum. Að loka pósthúsinu í Austurstræti hefði aldrei átt að eiga sér stað. Lítið pósthús gæti auðveldlega virkað í einni af tugum tómra lundaverslana.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til Póstsins. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Heyr! Það er einkennilegt að maður þurfi að hjóla út á Mela í öllum veðrum til að sækja póstþjónustu. Hún á að vera miðsvæðis.
Að sjálfsögðu ..!! Það var áfall fyrir okkur sem búum við miðbæjinn að sá á eftir pósthúsinu okkar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation