Hvað viltu láta gera? Opna kafla í Laugalæk þar sem gamli heiti lækurinn fær að sjá dagsins ljós og fólk getur baðað tærnar á sér. Það mætti taka 1-2 bílastæði í burtu og láta lækinn renna þar. Hvers vegna viltu láta gera það? Gerir fólk hamingjusamt að hafa svona skemmtilegheit í hverfinu. Varðveita einkenni byggðarinnar og upphaf baðmenningar í Reykjavík. Lífgar uppá aðalgötuna í Laugarnesi.
Það væri nær að hleypa aftur heitu vatni á þvottalaugarnar í stað þess að fara að beina börnum í fótþvott við fjölfarna umferðargötu.
þetta er góð hugmynd og gæti komið strekt inn með grilskálanum og úti Danspalli
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Einnig er óljóst hvort að hugmynd sé framkvæmanleg á umræddu svæðu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation