Hvað viltu láta gera? Bæta umhverfi og lýsingu í Bólstaðarhlíð við Ísaksskóla að lokun við Stakkaborg Hvers vegna viltu láta gera það? Gatan er óvistleg og býður uppá hraðakstur. Lýsing götunnar er mjög ágeng og gerir það að verkum að draga verður fyrir glugga til að forðast flóðlýsingu í stofum og svefnherbergjum á annari og þriðju hæð. Þetta er sérlega hvimleitt þegar daginn tekur að stytta. Berið saman efri og neðri hluta götunnar.
Ég er búsett í næstu götu við og mér finnst götulýsingin þar nógu slæm og þessi flóðlýsing úr næstu götu nær einnig hingað.
Lýsingin er verulega erfið og þarf að hafa gluggatjöld fyrir nær öllum stundum þegar götulysing er á.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndir er falla innan verkefna og valdheimilda Reykjavíkurborgar verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deilda innan stjórnsýslu borgarinnar. Lýsing á umræddu svæði er hluti af LED væðingu Reykjavíkurborgar sem er í vinnslu og verður kláruð á næstu árum. Skipulagsferill þess að breyta götunni sjálfri er of langur fyrir tímaramma Hverfið mitt. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation