Hvað viltu láta gera? Skíðabrekku með diskalyftu á hentugum stað í hlíðum Úlfarsfells, aðeins stærri en hinar skíðabrekkur borgarinnar. Án þess að raska vinsælum gönguleiðum svæðisins. Hvers vegna viltu láta gera það? Eykur útivistarmöguleika svæðisins á veturna, gerir börnum kleift að æfa sig á skíðum/bretti án mikillar fyrirhafnar. Frábær fjölskylduíþrótt. Á sumrin væri e.t.v. hægt að nýta brekkuna fyrir fjallahjól eins og gert er í Skálafelli og víðar.
Fjölsótt útivistarsvæði og aðgengilegt fyrir marga. Gætu nýst alls konar fjölskyldum sem gætu skellt sér á skíði á meðan aðrir myndu kjósa gönguleiðirnar.
Mikið af börnum í hverfinu og mikið um fóln sem nýtur þess að stunda útivist á græna svæðinu í kringum hverfið
Frábært sport
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins og hugmyndin felur í sér rekstrarkostnað sem gerir hana ótæka fyrir verkefnið Hverfið mitt. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Stutt að fara á skíði, og eykur á fjölbreytileika hverfisins til hreyfingar og útiveru. Kveikir áhuga á skíðaíþróttinni. Mjög góð hugmynd.
Væri frábært að fá skíðalyftu í hverfið,
Frábært fjölskyldusport
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation