Hvað viltu láta gera? Leggja hringleið um Öskjuhlíðina, sem er nægjanlega breið til þess að hægt sé að troða á henni gönguskíðabraut. Eins væri æskilegt að gott aðgengi væri að brautinni, gangandi eða með strætó. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég er bíllaus, og nenni ekki að fara upp í Heiðmörk eða Bláfjöll á gönguskíði. Ég teldi það vera góða þjónustu við íbúa að hægt væri að troða gönguskíðabrautir sem víðast í borgarlandinu þegar snjóar á vetrum, svo hægt sé að rölta að heiman beint á brautina með skíðin á öxlinni.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Þín hugmynd var ekki metin tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem ekki er um að ræða eiginlega nýframkvæmd ásamt því að hugmyndin felur í sér verulegan rekstrarkostnað. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til ÍTR. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation