Hvað viltu láta gera? Setja bekk og borð og grillaðstöðu á svæðinu við aparóló í Ártúnsholti. Hvers vegna viltu láta gera það? Þarna eru alla jafna hópar barna að leik og oft margir foreldrar sem fylgja, það væri huggulegt og myndi skapa skemmtilega stemmingu að geta fengið sér sæti, fólk kæmi jafnvel með kaffi á brúsa, pullur á grillið. Þá myndi þar bæði skapast vettvangur fyrir foreldra til að skerpa á tengslum sín á milli, hverfið til að mynda meiri heild og svæðið þarna tilvalið fyrir huggulega útivist, hvort sem er fyrir fjölskylduna eða hópa úr hverfinu.
Það sárlega vantar borð og bekk í hverfið. Það ætti að vera staðalbúnaður við öll útileiktæki
Þetta er svo dásamelgt svæði en vantar enn uppá þó þar hafa verið gerðar breytingar til hins betra (leikkastali) Þyrfti líka að laga malbikið á körfuboltavellinum við hliðina svo hægt sé að spila þar körfubolta án þess að boltinn skjótist til hliðar í leik. Einnig þyrfti að strekkja á aparólunni ( er orðin mjög lág) og setja einhverja dempara neðst. Líst svakalega vel á þá hugmynd að fá bekki og grillaðstöðu svipaða og á klampratúni
Pikknikk-borð væri frábær viðbót við aparóló!
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Árbæjar og Norðlingsholts á miðvikudaginn næstkomandi þann 28. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/730082194357926/. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation