Hvað viltu láta gera? Leggja nýjan göngu og hjólastíg norðanmegin við Hraunbæ Hvers vegna viltu láta gera það? Núverandi göngustígur er brotinn á köflum og genginn úr sér. Aðgengi að búðarkjarna er ekki gott þarna nema á bíl. Væri kjörið að lagfæra göngustíginn og bæta við hjólastíg fyrir betra aðgengi.
Væri virkilega gott að fá góða gönguleið norðanmegin. Óttalegt brölt að ganga i búðina ur nýju blokkunum á milli Hraunbæjar og Bæjarháls
Góð hugmynd, þar sem það er algerlega ómögulegt að fara hjólandi um sunnan megin við götuna, vegna margra kanta og innkeyrslna. Að nýta götuna sjálfa til hjólreiða er heldur ekki ákjósanlegt af sömu ástæðu. Stígur norðan megin, þar sem hjólandi umferð í báðar áttir yrði leyfileg, myndi leysa málið mun betur.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Uppbygging hjólreiðastíga er í undirbúningi og verður framkvæmd í áföngum á næstu árum. Hugmyndinni verður vísað sem ábendingu inn í þá vinnu hjá samgöngudeild umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar. Hluti hugmyndar flokkast sem viðhaldsverkefni og verður komið áfram sem ábendingu til viðeigandi deildar innan stjórnsýslu borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation