Hvað viltu láta gera? Auglýsa eftir rekstraraðilum að drykkjar- og matarvögnum á Klambratúni. Gera Klamratúnið þannig að alvöru almenningsgarði þar sem hægt er að njóta dagsins með ýmis konar mat og drykk. Frábært væri að fá bara kaffivagn en það er ekkert því til fyrirstöðu að það væru ýmis konar vagnar eins og tíðkast í almenningsgörðum erlendis. Hvers vegna viltu láta gera það? Auka flóruna, lífið og gleðina á Klambratúni.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 – 2021 þar sem ekki er um eiginlega nýframkvæmd að ræða. Hægt er að sækja um leyfi til að koma með tímabundna sölubása eða vagna hjá afnotadeild Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation