Sæbrautarstokkur lengdur

Sæbrautarstokkur lengdur

Hvað viltu láta gera? Sæbrautarstokkur, samkvæmt nýlegum skipulagsáætlunum á að ná frá Vesturlandsvegi að Holtavegi, en æskilegt væri að lengja hann frá Vesturlandsvegi að Dalbraut til að tryggja betri aðgang að Holtagörðum fyrir gangandi vegfarendur og einnig ýta undir góða tengingu nýs Vogahverfis við Laugardal. Hvers vegna viltu láta gera það? Sæbrautarstokkur samkvæmt núverandi skipulagsáætlun á að enda við Holtaveg sem gerir það að verkum að gangandi vegfarendur munu enn þurfa að ganga yfir mikla umferðargötu fyrir matarinnkaup og aðrar nauðsynjar sem finnast í Holtagörðum. Með nýjum fréttum um kaup Reykjavíkurborgar á “Adam og Evu” til að gera að leikskóla er enn meiri krafa um lengingu Sæbrautarstokks. Hverfið er þannig öruggara og barnvænna og hvetur til göngu frekar en keyrslu.

Points

Því minni umferð á yfirborðinu, þvi betra.

Verður að bæta okkar umhverfi. Mikill umferðarþungi.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Um er að ræða þjóðveg í þéttbýli og breytingar því á forræði Vegagerðarinnar sem er veghaldari þjóðvega. Vegagerðin og Reykjavíkurborg eiga farsælt samstarf um úrbætur á þjóðvegum og verður tillögunni komið áfram til Vegagerðarinnar og skrifstofu samgöngustjóra og borgarhönnunar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information