Bæta aðgengi hjólandi og rafhlaupahjólandi við kjarnastaði

Bæta aðgengi hjólandi og rafhlaupahjólandi við kjarnastaði

Hvað viltu láta gera? Bæta við hjólastígum og ljósastýringum fyrir hjólandi og rafhlaupahjólandi í kringum kjarnastaði Breiðholts í Mjódd, Hólagarði, ofl. þar sem mismunandi umferðarmátar þurfa í æ meira mæli að taka tillit til hvorra annarra. Hvers vegna viltu láta gera það? Umferð er að aukast, umferð er þyngri í slæmu færi og fjölbreyttir samgöngumátar með innlöndum orkugjöfum eru að ryðja sér til rýms sem margir kjósa fram yfir einkabílinn. Mikil uppbygging hefur verið á vegum Reykjavíkurborgar í þessum málum en það vantar að klára samtengd leiðarkerfi. Þetta mjög mikilvægt þar sem mikið er um brekkur og erfiða ferð á þessum stað sem getum gert erfitt fyrir fólki og skapað pirring í garð nágrannans.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information