Hvað viltu láta gera? Fjarlægja "bunguna" við endagatnamót Bæjarbrautar og Rofabæjar. Frekar bara að "þynna" gangstéttina niður að akbrautinni til þæginda fyrir gangandi/hjólandi. Hvers vegna viltu láta gera það? Hún hefur enga þýðingu hvað varðar hraðaskerðingu, því hún er við endan á veginum og aðeins mögulegt að taka 90° beygju til vinstri eða hægri. Einmitt þess vegna er mjög bagalegt að hafa þessa bungu þarna því hver einasti bíll sem þarf að taka þessa beygju frá Rofabænum í norður Bæjarbrautina, veltur og vaggar með tilheyrandi óþægindum fyrir farþega og varning. Þetta veldur líka algjörlega óþörfu sliti á fjöðrunarbúnaði bílanna - Athugið að mjög margir fara þarna hjá tvisvar, þrisvar eða oftar á dag - alla daga ársins. (algjörlega óþörf Vagg & Velta ca. 1100 sinnum á ári fyrir hvern og einn). Það þarf þá ekki heldur að viðhalda þessari bungu, sem ætti að vera kærkominn sparnaður í framtíðinni. Það myndi spara töluvert í viðhaldi.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation