Hvað viltu láta gera? Umferð á Tjarnargötunni á milli Hringbrautar og Skothúsvegar er mikil og bílar keyra þar allt of hratt. Þetta á sérstaklega við um þá umferð sem beygir í norður inn á Tjarnargötuna af Hringbraut. Á þessari götu ætti að vera einstefna í suður. Hvers vegna viltu láta gera það? Það er mikið um gangandi og hjólandi vegfarendur á þessari götu - ekki einungis íbúa heldur nemendur og starfsfólk Háskólans og fyrirtækja í Vatnsmýrinni sem og ferðamenn á leið til og frá Þjóðminjasafninu. Þessi hraða umferð sem kemur inn af Hringbrautinni stefnir fólki í hættu, sérstaklega á göngubrautinni syðst á Tjarnargötunni. Að auki er gatan of þröng fyrir umferð í báðar áttir. Ég hef oft orðið vitni að því að bílar lenda hérumbil í árekstri þegar einn kemur brunandi inn af Hringbraut og hinn er á leið suður út á Hringbraut. Þessi breyting myndi auka öryggi allra vegfarenda og lækka umferðarhraða á lítilli götu í íbúðahverfi. Hún er líka ódýr - bara eitt eða tvö skilti við Hringbrautina.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Einnig er umrædd hugmynd í skoðun annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til samgöngudeildar umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation