Hvað viltu láta gera? Vil fá flokkunar gáma fyrir gler og málma til viðbótar við plast og pappagáma í spöng og helst setja upp niðurgrafna gáma sem er mun snyrtilegra Hvers vegna viltu láta gera það? til hvatningar um flokkun á fleiri tegundum og minnka heimilissorp, frá gangur sorpgáma við Móaveg er alveg til fyrirmyndar og væri frábær hugmynd að hafa í spönginni
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Hluti hugmyndarinnar hefur nú þegar verið framkvæmdur og hinn hluti hugmyndarinnar er í ferli annars staðar í borgarkerfinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Væri gott að hafa sem flesta gáma þar, kerta, ál o.fl.
Umgengnin um þessa gáma hefur verið með hætti sem kallar á að útfærsla þessa gámasvæðis verði endurskipulögð og hönnuð svo sómi og hagnýting sé af.
Það vantar gám fyrir málma í Spöngina. Ég vinn í Árbænum og fer með málmdósir þangað en mér finnst að ég ætti að geta losað mig við málminn í mínu heimahverfi.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation