Hvað viltu láta gera? Að verði gert almennilegt svæði fyrir fjölskyldur og börn til að leika sér í húsahverfi á milli Grundarhús og Vallarhús. Með rólum, rennibraut, litlum kastala. Möguleg grill aðstaða fyrir fjölskyldur á sumrin. Hvers vegna viltu láta gera það? Því það er enginn almennileg aðstæða fyrir börn að leika sér örugg undir grunnskóla aldri í húsahverfi.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Svæðið sem um ræðir er ekki á lóð Reykjavíkurborgar heldur er um húsfélagsmál að ræða. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Alveg sammála, væri frábært að nýta þetta svæði fyrir börn og fjölskyldur í hverfinu
Hverfið er að yngjast og það vantar alveg leikvöll fyrir yngstu börnin.
Þetta er hverfi sem er í mikilli endurnýjun og hefur verið skilið eftir í uppbyggingu aðstöðu fyrir krakka. Annarhver skóli á höfuðborgarsvæðinu er með sparkvelli eða skólahreystisbraut. Það hlýtur að vera hægt að henda í gott fjölskyldusvæði hér.
Frábært vannýtt svæði
Algjörlega sammála! Mjög miðlæg staðsetning sem myndi sinna mörgum börnum. Enda mikið um fjölskyldur með börn í þessu hverfi.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation