Gróðurreitur

Gróðurreitur

Hvað viltu láta gera? Svæði milli Sólheimasafns, Sólheimablokkanna, leikskólanna og göngustígsins við raðhúsin við Skeiðarvog. Þetta svæði er í mikilli órækt algjörlega ónýtt vegna ofvaxins Kerfils. Hérna væri hægt að búa til gróðurvin, með berjarunnum, fjölærum kryddjurtum, blómabeðum, bekki og borð jafnvel grilli. Lítil vin sem að íbúar geta tillt sér niður aldnir sem ungir og notið. Jafnvel ræktað grænmeti í allra sameign. Hvers vegna viltu láta gera það? það er ömurglegt að horfa á þessa óreiðu og órækt

Points

Góð hugmynd

Mér finnst synd að síðasti náttúrublettur í hverfinu skuli hverfa. Kerfillinn er aðeins á takmörkuðum hluta. Þar eru sjálfsprottin tré. Er þetta ekki lóð undir bílskúra Sólheima 25 og 27.

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefni hugmyndarinnar er ekki innan verkefna / valdheimilda Reykjavíkurborgar eða ekki á borgarlandi. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information