Reiðhjólastígar við göngustíga - Breiðholt

Reiðhjólastígar við göngustíga - Breiðholt

Hvað viltu láta gera? Að lausn sé fundin á öryggi gangandi vegfarenda á göngustígum Breiðholts. Umferð reiðhjóla, keppnisreiðhjóla og vespa skapar hættu á göngustígum. Tillaga 1: Að útbúa annan stíg við hlið göngustígs fyrir reiðhjól og vespur. Tillaga 2: Að deila núverandi göngustíg með merkingum eins og víða er gert þar sem gangandi vegfarendur eru öðru megin og reiðhjól og vespur eru hinu megin. Hvers vegna viltu láta gera það? Ég er íbúi Seljahverfis og vil tryggja öryggi gangandi vegfaranda á göngustígum. Mjög lítil tillitsemi er við gangandi vegfarendur á göngustígum, hjólandi fólk fer framúr göngufólki án þess að nota bjöllu eða aðrar viðvaranir, oft á ógnarhraða. Hjólafólk virðist eygja pláss við hlið göngufólks og smeygja sér framhjá því. Hér skapast því mikil hætta, fyrir fólk á göngu og fólk með börn og hunda. Einnig skapast hætta ef göngufólki verður á að stíga aðeins til hliðar á sinni leið í sömu svipan og hjólreiðamaður ætlar sér framúr án viðvörunar. Mig langar að geta gengið örugg á göngustígum án þess að vera sífellt að líta aftur fyrir mig. Kærar þakkir fyrir skilninginn. Katrín Helgadóttir

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Uppbygging hjólreiðastíga á umræddu svæði eru í vinnslu og verða framkvæmdir í áföngum á næstu árum. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information