Ofanflóðahættumat

Ofanflóðahættumat

Hvað viltu láta gera? Vinna ofanflóðahættumat gagnvart byggð og almennt hættumat gagnvart útivistarsvæðum m.a. í Blikdal, við Kerhólakamb, Þverfellshorn, Gunnlaugsskarð, Grafardal, Háahnjúk, Móskarðshnjúka og Skálafell. Hvers vegna viltu láta gera það? Ástandið á Seyðisfirði er ofarlega í huga og við þurfum að vita hvernig ástandið er gagnvart núverandi og nýrri byggð á Kjalarnesi allt frá Blikdal og að Hrafnhólum. Endurtekin slys og dauðsföll á útivistarsvæðinu frá Blikdal að Svínarskarði kalla á aðgerðir við vöktun, upplýsingagjöf, aðvaranir og jafnvel tímabundnar lokanir á einstaka stöðum.

Points

Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem hún flokkast sem viðhalds- eða öryggisverkefni. Viðhalds- og öryggisverkefni eru ekki lengur hluti af lýðræðisverkefninu Hverfið mitt. Réttur farvegur fyrir slíkar hugmyndir eru á vefnum: https://abendingar.reykjavik.is/ Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is

Skriðuföll eru þekkt úr Kistufellinu og nágrenni.

Umtalsverð aukning á umferð fólks hefur orðið á svæðinu síðustu árin.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information