Hvað viltu láta gera? Gatnmótin við Húsasmiðjuna er eina leiðin inní hverfið sunnan að. Mikil örtröð myndast á álagstímum í kringum Krónuna. Ef samkoma er í Gullengi (erfidrykkja o.þ.h.) myndast umferðaröngþveiti. Opna leið frá Þúsöld og upp í hverfið fram hjá Lögreglustöðinni til að létta á álagi á þessum gatnamótum. Hvers vegna viltu láta gera það? Minnka áhættu, auka umferðaflæði, bæta geðið.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021. Skipulagsferill þessar hugmyndar væri of langur fyrir tímaramma verkefnisins eða hugmyndin samræmist ekki gildandi skipulagi á svæðinu. Hugmyndinni þinni verður komið áfram sem ábendingu til viðkomandi sviðs innan borgarinnar. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Klára Hólmsheiðarveginn. Það væri ný leið inn í hverfið og út úr því. Þeir sem væru á leið austur þyrftu þá ekki að fara út á vesturlandsveg í alla umferðina.
Bætir aðgengi að hverfinu.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation