Hvað viltu láta gera? Vil fá bekki og almennileg skýli þar sem fólk bíður eftir Strætó . Svo má lika bæta i Spönginni . Ekki nóg að vera bara með eitt skýli með pláss fyrir 2 sitjandi ..Oft margir að bíða . Þarf fleiri bekki og annað skýli þetta er nú einu sinni aðalskiptistöðin þarna fyrir alla vagna. Svo vantar tilfinnanlega skýli við Strandveginn á móts við Bæjarflöt , Gylfaflöt.. Þar er t d Miðgarður þjónustumiðstöðin þar sem margir þurfa að komast og mörg fyrirtæki . Bara staur núna . Hvers vegna viltu láta gera það? Vegna þess að það myndi bæta aðgengi og fleiri myndu taka vagnana
Er í öðru ferli Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem verkefnið sem um ræðir í hugmyndinni er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Hugmyndinni verður komið áfram sem ábendingu til Strætó. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation