Hvað viltu láta gera? Setja upp ærslabelg á völdum stað í Seljahverfinu. Hvers vegna viltu láta gera það? Mikil eftirspurn hefur verið eftir ærslabelg í Seljahverfi. Skemmtilegt útisvæði er í Seljadal sem býður m.a. upp á frisbígolf, aparólu og grillaðstöðu. Ærslabelgur myndi slá í gegn hjá öllum, sérstaklega ungum börnum og myndi ramma inn dalinn sem fullkomið fjölskyldusvæði. Aðgengi að svæðinu er mjög gott úr öllum áttum. *Undirhugmyndir Ærslabelgur við Seljaskóla eða andapollinn í Seljahverfi: https://betrireykjavik.is/post/38644 Ærslabelgur milli Engjasels og Flúðasel: https://betrireykjavik.is/post/29018
Allir krakkar elska þetta
Frábær hugmynd, yrði notað mjög mikið af mínum börnum
Frábær hugmynd fyrir þetta svæði
Skemmtileg og góð hreyfing fyrir börnin
Geggjud hugmynd👍
Væri æði
Þetta væri algjör snilld fyrir krakkana í hverfinu. Eykur gleðina við útileikina og alveg brilliant staðsetning.😍
100 prósent spennandi hlutur..algert æði
Hreyfing, bætir, kætir. Ærslabelg í öll hverfi takk, líka í Bakkana takk.
Frábær viðbót í Seljahverfið!
Þetta er geggjuð hugmynd
Tel það mjög gott að styrkja þetta svæði enn frekar. Sérstaklega mikilvægt svæði fyrir nemendur í Ölduselsskóla þar sem þetta er miðja hverfisins og öflugt svæði miðsvæðis stuðlar að frekari samgangi og blöndun barna sem búa í jaðri hverfisins. Góð hugmynd fyrir börnin og sömuleiðis staðsetningin.
Gott tækifærti til að nýta dalinn og betur fyrir börnin í hverfinu.
Frábær hugmynd og góð staðsetning - en nauðsynlegt að hafa eftirlitsmyndavélar líka svo unglingar á vespum sem leika sér að því að keyra yfir belginn og skemma hann komist ekki upp með slík athæfi.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin hefur verið aðlöguð og sameinuð við aðrar hugmyndir um ærslabelgi í Seljahverfi þar sem að ýmsu þarf að huga þegar verið er að velja staðsetningu ærslabelgja. Horfa þarf til fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði, hávaðamengunar og aðgengis. Þarf að vera á opnu svæði í borgarlandi og nóg rými og pláss fyrir belginn. Svæðið þarf að vera tiltölulega slétt, ekki í halla, og jarðvegur má ekki vera grýttur. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
Geggjuð hugmynd!
Èg keyri nánast daglega à sumrin upp ì Kópavog með strákana mína 11 og 14 ára og vini þeirra til að hoppa á belgnum þar.
Mjög góð staðsetning og yrði örugglega vinsælt hjá börnunum
Krakkarnir myndu elska það
Frábær hugmynd, góð staðsetning, yrði afar vinsæll viðkomustaður.
Lífgar upp á dalinn
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation