Hvað viltu láta gera? Setja Ærslabelg eða niðurgrafið trampólín við eða nálægt leiksvæðinu á Klambratún Hvers vegna viltu láta gera það? Bæta við flóruna í leiktæki á Klambratúni, krakkar elska að hoppa á ærslabelg / tampólíni og væri það kærkomin viðbót fyrir krakkana í hverfinu. *Undirhugmyndir: Ærslabelgur á Klambratún: https://betrireykjavik.is/post/28490 Niðurgrafinn trampólíngarður á Klambratún: https://betrireykjavik.is/post/28509
Það eru ærslabelgir á helstu opnu útivistarsvæðum sveitarfélaga um allt land. Þeir eru afar vinsælir hjá krökkum á öllum aldri. Það er enginn ærslabelgur miðsvæðis í Reykjavík - þeir næstu eru aftan við Kringluna, í Laugardalnum og á Seltjarnarnesi. Það væri frábært að fá einn meira miðsvæðis í göngufæri fyrir allar fjölskyldurnar sem búa í Norðurmýrinni og í Hlíðunum.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Hugmyndin hefur verið aðlöguð og verður staðsetning á völdum stað í hverfinu þar sem að ýmsu þarf að huga þegar verið er að velja staðsetningu ærslabelgja. Horfa þarf til fjarlægðar frá íbúðarhúsnæði, hávaðamengunar og aðgengis. Þarf að vera á opnu svæði í borgarlandi og nóg rými og pláss fyrir belginn. Svæðið þarf að vera tiltölulega slétt, ekki í halla, og jarðvegur má ekki vera grýttur. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson hverfidmitt@reykjavik.is
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation